79. fundur Fræðslunefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 20. september 2018 og hófst hann kl. 16:30.
Fundinn sátu:
Guðmundur Grétar Karlsson, Sigurður Óli Þórleifsson, Siggeir Fannar Ævarsson, Guðbjörg Gerður Gylfadóttir, Herdís Gunnlaugsdóttir Holm, Petra Rós Ólafsdóttir, Fríða Egilsdóttir, Inga Þórðardóttir, Hulda Jóhannsdóttir og Guðbjörg Málfríður Sveinsdóttir.
Fundargerð ritaði: Ingibjörg María Guðmundsdóttir, Yfirsálfræðingur.
Dagskrá:
1. Starfsáætlun skólaþjónustu 2017-2018 - 1710112
Lögð fram ársskýrsla skólaþjónustu Grindavíkur fyrir skólaárið 2017-2018.
2. Endurskoðuð skólastefna Grindavíkurbæjar 2017 - 1709097
Lögð fram drög að endurskoðaðri skólastefnu Grindavíkurbæjar. Fræðslunefnd samþykkir að vinna að stefnunni, fá ábendingar frá skólastjórnendum og leggja aftur fram á fundi í nóvember.
3. Skólahúsnæði: Hönnun og framkvæmdir - 1802069
Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að stofnuð verði bygginganefnd grunnskóla. Lagt til að nefndin verði skipuð þremur aðilum, einum með þekkingu á grunnskólamálum, einum með þekkingu á byggingamálum og einum bæjarfulltrúa. Nefndinni til fulltingis verði sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulagssviðs. Þá leggur nefndin áherslu á að aðgangur hagsmunaaðila að vinnunni verði skilgreindur strax í upphafi. Jafnframt er mikilvægt að störfum nefndarinnar verði markaður tímarammi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00.