Í vetur býðst nemendum í 5. og 6. bekk að leggja stund á hljóðfæragerð í tengslum við tónlistarkennslu í bundnu vali sem er samvinnuverkefni grunnskólans og tónlistarskólans. Unnið er með ýmis efni úr umhverfinu til að skapa nothæf hljóðfæri og spilun æfð. Lögð er áhersla á að nemendur nýti eigin sköpunargáfu og hugmyndaflug til að hver og einn skapi sér sitt einstaka hljóðfæri. Í vetur er áhersla lögð á blásturs og slagverkshljóðfæri.