30. fundur umhverfis- og ferðamálanefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 12. september 2018 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Sigurveig Margrét Önundardóttir formaður, Klara Bjarnadóttir aðalmaður, Teresa Björnsdóttir aðalmaður, Sigríður Etna Marinósdóttir aðalmaður, Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Siggeir Fannar Ævarsson upplýsinga- og skjalafulltrúi.
Fundargerð ritaði: Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Dagskrá:
1. Tjaldsvæði: Rekstur 2018 - 1809042
Farið yfir innkomu og gestafjölda á tjaldsvæðinu. Tekjur hafa aukist þrátt fyrir að aðeins hafi dregið úr gestafjölda. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að tjaldsvæðið verði opið allt árið. Sviðstjóri frístunda- og menningarsviðs mun vinna málið áfram til fjárhagsáætlunar.
2. Vinnuskólinn: skipulag 2018 - 1802006
Farið yfir starf vinnuskólans sumarið 2018.
3. Grindavíkurbær: Heilsueflandi samfélag - 1610059
Farið yfir stígamál í tengslum við verkefnið heilsueflandi samfélag. Nefndin leggur áherslu á að gert verði átak í skiltamálum í kjölfar endurskoðun aðalskipulags.
4. Umhverfis- og ferðamálanefnd: Samþykkt og fundadagatal - 1809043
Farið yfir samþykkt nefndarinnar og fundardagatal.
5. Breyting á deiliskipulagi: rannsóknaborholur í Svartsengi - 1808005
Lagt fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30.