78. fundur Fræðslunefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 6. september 2018 og hófst hann kl. 16:30.
Fundinn sátu:
Guðmundur Grétar Karlsson formaður, Siggeir Fannar Ævarsson aðalmaður, Guðbjörg Gerður Gylfadóttir aðalmaður, Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Herdís Gunnlaugsdóttir Holm áheyrnarfulltrúi, Inga Þórðardóttir skólastjóri, Hulda Jóhannsdóttir leikskólastjóri, Fríða Egilsdóttir leikskólastjóri og Sigurpáll Jóhannsson varamaður.
Fundargerð ritaði: Ingibjörg María Guðmundsdóttir, yfirsálfræðingur.
Dagskrá:
1. Tónlistarskóli: skóladagata 2018-2019 - 1808159
Skólastjóri leggur fram skóladagtal skólaárið 2018-2019 til samþykktar. Samræmdir hafa verið skipulagsdagar og frí við aðra skóla eftir því sem kostur er. Fræðslunefnd staðfestir skóladagatal Tónlistarskólans.
2. Starfsáætlun skólaárið 2018-2019 - 1809014
Inga Þórðardóttir lagði fram til kynningar starfsáætlun skólans. Þar koma fram helstu atriði, reglur, kennslugreinar og nýjungar í starfi skólans 2018-2019.
3. Leikskólamál: skóladagatal 2018-2019 - 1804013
Leikskólastjóri óskar eftir að starfsdagur sem áætlaður var 22. október verði færður til þriðjudagsins 23. okt. sem er skipulagsdagur hjá Grunnskólanum. Fræðslunefnd samþykkir breytingu á skóladagatali 2018-2019.
4. Ársskýrsla 2017-2018 - 1809011
Ársskýrsla Heilsuleikskólans Króks lögð fram.
5. Leikskólahúsnæði; Aukning/stækkun - 1807010
Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að stofnuð verði bygginganefnd leikskóla. Lagt til að nefndin verði skipuð þremur aðilum, einum með þekkingu á leikskólamálum, einum með þekkingu á byggingamálum og einum bæjarfulltrúa. Nefndinni til fulltingis verði sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulagssviðs. Þá leggur nefndin áherslu á að aðgangur hagsmunaaðila að vinnunni verði skilgreindur strax í upphafi. Jafnframt er mikilvægt að störfum nefndarinnar verði markaður tímarammi.
6. Starfsumhverfi leikskóla og menntun kennara - 1809013
Fræðslunefnd leggur til við leikskólastjóra að næsti starfsdagur skólanna verði að hluta helgaður hugmyndavinnu um hvernig auka megi hlut fagmenntaðs starfsfólks í skólunum sem og hvernig minnka megi álag í starfsumhverfinu. Í kjölfarið verði tekin saman greinargerð sem lögð verður fyrir fræðslunefnd.
7. Hvatningarverðlaun fræðslunefndar - 1711009
Rætt um afhendingu hvatningarverðlauna sem fram fór í gær, hvað mætti betur fara eða gera öðruvísi. Hugmynd um að upplýsa fyrirfram um tilnefningar til að auka umræður. Athuga að skerpa á rökstuðningi fyrir tilnefningu þannig að verkefnum sé lýst.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00.