1485. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 24. júlí 2018 og hófst hann kl. 16:45.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson formaður, Sigurður Óli Þórleifsson varaformaður, Helga Dís Jakobsdóttir aðalmaður, Páll Valur Björnsson áheyrnarfulltrúi og Hallfríður G Hólmgrímsdóttir áheyrnarfulltrúi.
Einnig sat fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. Leikskólinn Laut: Eftirlitsskýrsla frá HES - 1712004
Umsjónarmaður fasteigna Grindavíkurbæjar sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Á 1484. fundi bæjarráðs var samþykkt að efna til fundar með starfsmönnum Lautar og foreldraráði um stöðu húsnæðismála skólans og var sá fundur haldinn í bæjarstjórnarsalnum kl. 16:00 í dag. Hluti fundarmanna kom einnig inn á bæjarráðsfundinn við umræður undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð tekur undir hugmyndir starfsmanna og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna áfram með þá hugmynd í samráði við stjórnendur Lautar. Jafnframt samþykkir bæjarráð að útistofan við Laut verði fjarlægð.
2. Akstursleið til Grindavíkur: Hættuleg gangbraut yfir veginn - 1807030
Fyrir fundinum lá bréf frá íbúum við Árnastíg þar sem vakin var athygli á þeirri hættu sem getur skapast á gangbraut yfir Víkurbraut.
Bæjarráð þakkar ábendinguna og samþykkir að fela sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að gera tillögur til úrbóta sem fyrst.
3. Kosning fulltrúa á landsþing - 1806073
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga verður haldið á Akureyri 26.-28. september nk. Grindavíkurbær hefur rétt til að senda þrjá bæjarfulltrúa á landsþingið auk bæjarstjóra. Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30.