Skráning er hafin á sumarnámskeið Brimfaxa sem hefjast næstkomandi mánudag, þann 25. júní. Námskeiðin verða með sama sniði og undanfarin ár og líkt og í fyrra haldin af hestamannafélaginu Brimfaxa í samstarfi við Arctic horses. Námskeiðin eru 5 daga í senn, krakkarnir mæta við reiðhöllina með smá nesti í góðum bakpoka nema síðasta daginn þá er grill í boði.
Ef að ekki næst næg þáttaka þá verður námskeið fellt niður. Námskeiðið kostar 17.000 kr og greiðist með millifærslu á Brimfaxa fyrir námskeið. Skráning er hjá Jóhönnu í síma 848-0143.
Námskeið í boði:
25. - 29. júní / óvanir kl 13-15:30
2. - 6. júlí / vanir kl 13-15:30
9. - 13. júlí / óvanir kl 10-12:30
30. júlí - 3. ágúst / vanir kl 10-12:30
6. - 10. ágúst / óvanir kl 13-15:30
27. - 31. ágúst / vanir kl 15:00-17:00 (styttri tími 15.200 kr)
Greiðsluupplýsingar:
0146 - 15 - 250134
kt: 530410 - 2260
Senda kvittun á brimfaxi@gmail.com
--
Hestamannafélagið Brimfaxi - http://www.brimfaxi.is