Hin árlega söngvakeppni sem hefur verið haldin 17. júni hefur fengið nýtt yfirbragð og verður haldin tónlistarkeppni í hennar stað. Umsjón keppninnar er í höndum Írisar Kristinsdóttur og Siggu Mayu, tónlistarkvenna, og sjá þær um undirbúning og skráningu í keppnina.
„Við tókum við umsjón keppninnar á síðasta ári og þá vaknaði strax sú hugmynd að þessi vettvangur væri kjörinn fyrir fleiri en söngvara til að spreyta sig og tókum þá ákvörðun að í ár yrði ungu tónlistarfólki boðin þáttaka. Við vitum hversu mikilvægt það er fyrir upprennandi tónlistarfólk að fá að koma fram og njóta hæfileika sinna og bjóðum því öllu ungu fólki á grunnskólaaldri að vera með í ár og veitum verðlaun í nokkrum flokkum, meðal annars besta framkoma og besti tónlistarflutningur. Með þessu vonumst við til að efla tónlistarstarf og sýnileika ungs tónlistarfólks sem við eigum hér í heimabænum okkar, enda eru hér hæfileikar í hverju horni” segja þær stöllur í viðtali.
Sú nýbreytni verður í ár að þáttakendum býðst að koma í viðtal sem áhugasamir geta svo nálgast á vef Grindavíkurbæjar þegar nær dregur að keppnisdegi. Dagskráin mun mótast eftir þáttöku en við fáum einnig sérlegan gest frá Tónlistarskóla Grindavíkur, Oliviu Ruth Mazowiecka til að flytja tónlistaratriði fyrir okkur.
Skráning í tónlistarkeppnina og allar frekari upplýsingar eru síma 898-4849.