Fulltrúar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf á komandi kjörtímabili hér í Grindavík, og var samningur þess efnis undirritaður í gær. Flokkarnir gáfu í kjölfarið út eftirfarandi sameiginlega yfirlýsingu áðan:
„B-listi Framsóknar og D-listi Sjálfstæðisflokks undirrituðu málefna- og samstarfssamning í sveitarstjórn Grindavíkurbæjar í gærkvöldi. Lögð verður rík áhersla á ábyrga stjórnunarhætti og góða samvinnu þvert á flokka í bæjarstjórn. Innihald málefnasamningsins verður lagt fram til kynningar á næsta bæjarstjórnarfundi og verður hann aðgengilegur á heimasíðu Grindavíkurbæjar í framhaldi.“