Borgarafundur frambjóðenda í Grindavík verður haldinn fimmtudaginn 24. maí í Iðunni við Ásabraut. Fundurinn fer fram milli kl. 17:00 - 19:00 á sal skólans. Fundarstjóri verður Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum. Fundurinn er öllum opinn og hvetja frambjóðendur bæjarbúa til að koma og hlýða á stefnumál flokkana. Dagskrá fundarins verður með eftirfarandi hætti:
* Fulltrúar framboða flytja fyrri framsögu.
* Fulltrúar framboða flytja seinni framsögu.
* Fundargestum gefst tækifæri á að spyrja frambjóðendur úr sal (stutt og hnitmiðað).
* Lokaávarp flokkana.
Fundarslit áætluð kl. 19:00
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Frambjóðendur
xB - Framsóknarflokkur
xD - Sjálfstæðisflokkur
xG - Listi Grindvíkinga
xS - Samfylkingin
xU - Rödd unga fólksins