Nýverið unnu nemendur í 2. bekk samþætt verkefni í samfélagsfræði og íslensku um risaeðlur. Út frá byrjendalæsi var bókin Risaeðlutíminn lesin. Eftir lesturinn var nemendum skipt upp í hópa sem hver vann og fræddist um ákveðna risaeðlu. Í fyrsta sinn unnu nemendur fræðslugrunn sem tekur aðalatriðin út frá öllum þeim upplýsingum sem fyrir eru. Samvinna, áhugi og vinnusemi einkenndi þessar vikur sem verkefnið stóð yfir.