Aðkoma að Hópsbraut frá Víkurbraut, úr Vesturhópi og af hringtorginu við Norður- og Suðurhóp, verður lokuð þriðjudaginn 22. maí og hugsanlega í nokkra daga áfram vegna framkvæmda. Hjáleiðir verða merktar á svæðinu og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát meðan á framkvæmdunum stendur. Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þessar framkvæmdir kunna að valda.