Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir konukvöldi í kvöld, fimmtudaginn 17. maí. Fjörið hefst kl. 20:00 og stendur til kl. 23:00 í Sjálfstæðishúsinu að Víkurbraut 25.
Vala Pálsdóttir formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna verður veislustjóri, Brynja Valdís verður með uppistand og stýrir happdrætti með veglegum vinningum. Veitingarnar verða ekki af verri endanum sem verður ljúft að njóta undir lifandi tónlist og sprelli. Fjörið er í boði Einhamar Seafood
Bjóðið vinkonu, ömmu, mömmu, vinnufélaganum, systurinni eða bara öllum konum með. Allar konur velkomnar!
Sjálfstæðisfélag Grindavíkur.