Það er aldeilis búið að vera gaman í gönguferðum hjá fyrsta bekk undanfarið þótt veðrið hafi ekki verið upp á marga fiska. Um mánaðamótin fóru þau í Mörtugöngunni út í Þórkötlustaðarhverfi og síðan fóru þau aftur þangað sl. mánudag í sveitaferð og þar var nú margt að sjá og gera. Þau fóru í leiki í fjárréttinni, skoðuðu fjöruna og fóru í heimsókn í hesthús, fjárhús og í dúfnakofa, einnig hittu þau hund og skemmtu sér alveg konunglega. Sjá má fleiri myndir á Facebook síðu skólans.