Vortónleikar tónlistarskólans fóru fram 5. maí s.l. í sal tónlistarskólans. Haldnir voru þrennir tónleikar og fjölmörg atriði voru á dagskrá þar sem nemendur sýndu listir sem þau hafa lært í vetur, ýmist á hljóðfæri eða söng. Nemendur stóðu sig mjög vel og var þeim vel fagnað af áhorfendum. Fleiri myndir er að finna á facebook- síðu tónlistarskólans.