Listi Grindvíkinga opnaði kosningaskrifstofu sína síðastliðinn laugardag í Hraunteigi að Víkurbraut 21a. Við það tilefni voru helstu stefnumál flokksins fyrir komandi kosningar kynnt. Stefnan hefur nú verið sett í heild sinni á vefsíðu listans sem nálgast má hér: https://kosningar2010.wordpress.com/stefnuskra-2018/
Í fréttatilkynningu frá flokknum segir:
„Listi Grindvíkinga mun leggja mikla áherslu á samskipti við ríkisvaldið að knýja fram lengingu fæðingarorlofs í 12 mánuði sem fyrst, fylgja eftir að Grindavíkurvegur verið kláraður að fullu auk þess sem við ætlum að herja á ríkið að efla heilbrigðisþjónustuna og fjölga sjúkrabílum. Þá viljum við að framtíðarsýn Grindavíkurbæjar verði skýr í öllum málaflokkum og fylgt eftir með ábyrgri stefnu."
Hægt verður að fylgjast með opnunartímanum í Hraunteigi fram að kosningum á vefsíðu framboðsins - http://www.glistinn.is