Móttökusvæðið fyrir garðúrgang við Nesveg (sunnan megin við endurvinnslustöð Kölku) verður lokað í dag og næstu daga vegna malbikunarframkvæmda á svæðinu. Gámur verður staðsettur fyrir utan lokunina sem hægt verður að setja garðúrgang í en stranglega bannað er að fara inn fyrir lokunina sem og að losa garðaúrgang á framkvæmdasvæðið. Eru Grindvíkingar beðnir um að virða lokunina meðan á henni stendur til að tryggja að framkvæmdir gangi hratt og örugglega fyrir sig.