Fimm Grindvíkingar í U15 landsliđum Íslands

  • Körfubolti
  • 25. apríl 2018

Þjálfarar U15 ára landsliðanna í körfubolta hafa nú valið sína lokahópa fyrir sumarið 2018. Um fjögur 9 manna landslið er að ræða, og hafa 18 leikmenn verið valdir í hvorn hóp. Liðin taka þátt á Copenhagen-Invitational mótinu í Farum í Danmörku um miðjan júní.

Fimm leikmenn Grindavíkur eru í þessum liðum, þar af fjórar stúlkur. Í stúlknalandsliðinu eru það þær Elísabet Ýr Ægisdóttir, Hulda Björk Ólafsdóttir, Júlía Ruth Thasaphong og Viktoría Rós Horne. Fulltrúi Grindavíkur í drengjalandsliðinu er Bragi Guðmundsson.

Það eru þeir Ingvar Guðjónsson sem þjálfar stelpurnar og Hjalti Þór Vilhjálmsson sem þjálfar strákana. Atli Geir Júlíusson verður Ingvari til aðstoðar og Skúli Ingibergur Þórarinsson aðstoðar Hjalta Þór. 

Landsliðshópana í heild sinni má sjá á kki.is


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!