Nemendur í öðrum bekk létu góða veðrið ekki framhjá sér fara í dag. Þau tóku bækurnar með út eftir hádegið og lásu sér til yndis og ánægju. Þau voru mjög einbeitt við lesturinn eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Fleiri myndir má sjá á facebook-síðu skólans.