Kaldavatnslaust er í hluta Grindavíkur í augnablikinu, en lögn fór í sundur við Austurveg nú fyrir skömmu. Unnið er að viðgerð og er reiknað með að hún taki um tvær klukkustundir. Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þessi bilun kann að valda og jafnframt er fólk beðið að fara varlega enda gæti sjóðandi vatn komið úr blöndunartækjum.
Viðgerð er lokið og vatnið komið á á ný.