Nýjar íbúðir í Víðihlíð lausar til umsóknar

  • Fréttir
  • 29. mars 2018

Lausar eru til umsóknar, sex nýjar íbúðir í Víðihlíð. Íbúðirnar eru bæði á 1. og 2. hæð. Um er að ræða tvær minni íbúðir og ein stærri hjónaíbúð á hvorri hæð. Minni íbúðirnar eru um 32 m2 en hjónaíbúðirnar eru um 55 m2.

Forsenda þess að geta sótt um íbúðina er að umsækjandi uppfylli öll eftirfarandi skilyrði: 
a. Umsækjendur um íbúðir skulu hafa náð 72 ára aldri. 
b. Umsækjandi skal hafa átt lögheimili samfellt í sveitarfélaginu í 12 mánuði. 
c. Umsækjandi sé í þörf fyrir félagslega aðstoð og stuðning til að geta búið á eigin heimili.

Heimilt er að veita undanþágur frá ofangreindum skilyrðum við ákveðnar aðstæður samkvæmt reglum Grindavíkurbæjar sem nálgast má í heild sinni hér.

Verð íbúðarréttar fyrir minni íbúðir er áætlað kr. 4.100.000,- og mánaðarleg leigugreiðsla er áætluð kr. 110.000,-. Verð íbúðaréttar fyrir stærri íbúðirnar er áætlað kr. 6.350.000,- og mánaðarleg leiga er áætluð kr. 175.000,-. Ef umsækjandi á ekki handbæra þá fjárhæð sem nemur íbúðarréttinum getur hann sótt um undanþágu til bæjarráðs frá greiðslu íbúðarréttarins. Ef undanþága er veitt af greiðslu íbúðarréttar að hluta eða öllu leyti greiðir leigutaki hærri leigu.

Umsækjendur eru beðnir um að athuga sérstaklega að ofangreindar upphæðir eru áætlaðar og mun endanlega upphæð ákvarðast þegar heildarbyggingarkostnaðar liggur fyrir.

Frestur til að leggja inn umsókn er tvær vikur eða til og með 12. apríl nk. Félagsmálanefnd Grindavíkur úthlutar íbúðinni á grundvelli mats á þörfum umsækjenda og er m.a. horft til andlegra, líkamlegra, fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna umsækjenda, auk húsnæðisaðstæðna.

Til að leggja fram umsókn um íbúðina þá smelltu hér. (PDF skjal, útfyllanlegt á rafrænu formi)

Reglur um úthlutun íbúða við Austurveg 5 hjá Grindavíkurbæ

Hér að neðan eru teikningar af viðbyggingunni ásamt teikningum af innréttingum

Víðihlíð - viðbygging

Víðihlíð - innréttingar


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum