Fiskiveisla eldri borgara Grindavíkur verður í Miðgarði, laugardaginn 17.mars, kl.18:00. Fiskurinn er í boði Stakkavíkur og Íslensks sjávarfangs í Grindavík og Nettó hefur verið innanhandar með annað viðbit. Ólafur Sigurðsson, Sigurgeir Sigurgeirsson og Anton Sigurðsson eiga heiðurinn af veislunni sem slíkri og þeir tveir síðastnefndu sjá um að elda matinn. Anton og Eyjólfur sjá um tónlist og söng fyrir gestina.
Allir eldri borgara velkomnir!