Menningarvika er nú óðum að ná hápunkti sínum, en í kvöld verða tvennir glæsilegir tónleikar á dagskrá. Kl. 20:00 eru tónleikar enska karlakórsins The Sundays boys í Grindavíkurkirkju og kl. 22:00 eru stórtónleikar SSSól á dagskrá í Salthúsinu.
Dagskrá dagsins í heild sinni er sem hér segir:
06:00-21:00 Sundlaug – ókeypis í sund
10:00 Bryggjan Kaffihús, GRINDAVÍKURSÖGUR Á BRYGGJUNNI
13:00-16:00 Kvikan, SALTFISKSÝNING opin gestum
13:00-16:00 Kvikan, HJARTSLÁTTUR – FÓLKIÐ SEM BYGGIR JÖRÐINA. Heilsuleikskólinn Krókur og Leikskólinn Laut sýna verk nemenda sinna unnin í samstarfi við Önnu Sigríði Sigurjónsdóttur, myndhöggvara
13:00 – 17:00 Kvennó, SÖGUSLÓÐIR, saga Grindavíkur skoðuð útfrá persónusögu fjögurra einstaklinga sem bjuggu í Grindavík á fyrrihluta 20. aldar
13:00-17:00 Framsóknarhúsið, ÞORPIÐ – ÞÓRKÖTLUSTAÐARHVERFIÐ. Sýning á ljósmyndum Sólveigar M. Jónsdóttur, ljósmyndara
20:00 Grindavíkurkirkja, THE SUNDAY BOYS, karlakór frá Manchester, Englandi, sem er í sinni fyrstu tónleikaferð erlendis og flytur fjölbreytta dagskrá. Miðaverð er 2.000 kr. miðar seldir við innganginn.
22:00 Salthúsið, SSSÓL, tónleikar á Salthúsinu. Hljómsveitin er þekkt fyrir mikla stemningu og á tíðum rokkaða framsetningu tónlistar sinnar í bland við mýkri flutning. Forsala miða er á Salthúsinu