Í gær fór fram lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar en hátíðin fór fram í Stóru-Vogaskóla. Nemendur Grunnskóla Grindavíkur gerðu sér lítið fyrir og röðuðu sér í þrjú efstu sætin.
Keppnin fer þannig fram að það eru þrír skólar sem keppa en auk Grunnskóla Grindavíkur eru það Stóru-Vogaskóli og Gerðaskóla í Garði sem taka þátt. Alls eru það 12 nemendur sem lesa en fyrir lokahátíðina hafa skólarnir haft sínar eigin keppnir þar sem þátttakendur eru valdir. Fyrir hönd Grunnskóla Grindavíkur lásu þau Eydís Steinþórsdóttir, Stefanía Jóakimsdóttir, Róbert Þórhallsson og Hjörtur Jónas Klemensson.
Eins og áður segir stóðu allir sig með mikilli prýði og röðuðu sér í efstu sætin og fengu öll peningaverðlun að launum. Úrslitin urðu eftirfarandi:
1. Eydís Steinþórsdóttir
2. Stefanía Jóakimsdóttir
3. Róbert Þórhallsson
Stjórnendur og kennarar skólans eru í skýjunum með þennan frábæra árangur krakkanna sem öll sem eitt stóðu sig frábærlega. Til hamingju!