Leikhópurinn Lotta sýnir Galdrakarlinn í Oz 17. mars - forsala miđa á Bókasafninu

  • Menningarfréttir
  • 12. mars 2018

Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur en síðastliðin ellefu sumur hefur hópurinn ferðast með útileiksýningar út um allt land. Á hverju ári setur hópurinn upp nýjar sýningar, sýningar sem allar hafa slegið í gegn og eru enn spilaðar af geislaplötum á fjöldamörgum heimilum. Núna hefur Lottan ákveðið að dusta rykið af þessum gömlu sýningum og endurvekja þær, 10 árum síðar og nú innandyra. Við byrjum því á byrjuninni, á Galdrakarlinum í Oz sem er fyrsta verkið sem sérstaklega var skrifað fyrir Lottu. 17. mars verður hópurinn með sýningu á Galdrakarlinum í Oz í Grindavík í Grunnskólanum Ásabraut klukkan 14:00. Forsala miða er á Bókasafninu og er miðaverð 2.000 kr. 



Flestir þekkja söguna af ævintýralegu ferðalagi Kansasstúlkunnar Dórótheu og Tótó, hundinum hennar, til ævintýralandsins Oz. Þar kynnist hún heilalausu Fuglahræðunni, hjartalausa Pjáturkarlinum og huglausa Ljóninu auk þess sem hún lendir í klóm vondu Vestannornarinnar. Dóróthea og vinir hennar lenda í allskyns hremmingum og þurfa að leita á náðir Galdrakarlsins ógurlega í Oz. Spurningin er núna hvort Galdrakarlinn getur hjálpað Dórótheu að komast aftur heim til sín og vinum hennar að fá það sem þá svo sárlega vantar.



Frábær sýning fyrir unga sem aldna, stelpur og stráka, pabba og mömmur og afa og ömmur 


Leikstjóri – Ágústa Skúladóttir
Höfundur leikgerðar – Ármann Guðmundsson
Lög og söngtextar – Anna Bergljót Thorarensen, Ármann Guðmundsson, Baldur Ragnarsson, Eggert Hilmarsson, Rósa Ásgeirsdóttir og Snæbjörn Ragnarsson.
Leikarar – Anna Bergljót Thorarensen, Baldur Ragnarsson, Huld Óskarsdóttir, Rósa Ásgeirsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir