Síđasta heimaleikurinn í deildinni

  • Fréttir
  • 8. mars 2018

Grindvíkingar leika sinn síðasta deildarleik í Domino's deild karla þetta vorið í kvöld þegar þeir taka á móti Þór frá Akureyri. Sæti Grindvíkinga í úrslitakeppninni er þegar tryggt en liðið getur enn hækkað sig upp um eitt sæti. Að sama skapi er mikil óvissa um það hvernig liðið fyrir ofan munu raðast í töfluna, svo það verður spennandi að sjá hverjum við mætum í 8-liða úrslitum.

Leikurinn hefst kl. 19:15 og að sjálfsögðu munu grillmeistarar körfunnar fíra upp í grillinu fyrir leik og bjóða upp á dýrindis hamborgara fyrir leik á kostakjörum.

Áfram Grindavík!


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!