Hið árlega bílabón meistaraflokks karla í knattspyrnu fer fram helgina 2. - 4. mars næstkomandi. Bílabónið er fjáröflun fyrir æfingaferð liðsins til Tyrklands.
Gunnar Þorsteinsson tekur á móti pöntun í síma 696-9723, en einnig er hægt að senda töluvpóst á mflgrindavik@gmail.com eða hafa samband í gegnum Facebook.
Innifalið í þjónustunni:
Bílarnir sóttir og þeim skilað aftur heim að dyrum
- Tjöruhreinsun
- Þrif að innan
- Þvottur
- Bón
Verðskrá:
- Fólksbílar: 10.000 kr
- Jepplingar: 12.500 kr
- Jeppar: 15.000 kr
Önnur farartæki eftir samkomulagi.
Síðast uppfært: 01.03.2018 14:37