456. fundur Hafnarstjórnar Grindavíkur haldinn Seljabót 2, þriðjudaginn 13. febrúar 2018 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Ómar Davíð Ólafsson formaður, Pétur Már Benediktsson aðalmaður, Páll Jóhann Pálsson aðalmaður, Gunnar Harðarson aðalmaður, Sigurður A Kristmundsson hafnarstjóri og Ámundínus Örn Öfjörð varamaður.
Fundargerð ritaði: Sigurður A Kristmundsson, Hafnarstjóri.
Dagskrá:
1. 1612032 - Miðgarður, uppbygging: Verksamningur og framvinda
Hafnarstjóri fór yfir stöðu verksins
2. 1802029 - Grindavíkurhöfn: Dýpkun við Miðgarð
Hafnarstjórn óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018 til að klára alla dýpkunina við Miðgarð og greiða því alla upphæð verksins þar til verkið kemst á fjárlög ríkissins.
3. 1710105 - Grindavíkurhöfn: Deiliskipulag, Eyjabakki og smábátahöfn
Ármann sviðstjóri skipulags - og umhverfissviðs fór yfir hugmyndir af deiliskipulagi fyrir austurhluta hafnarsvæðissins. Ármann mun leggja fyrir hafnarstjórn nokkur drög að deiliskipulagi fyrir svæðið.
4. 1802030 - Miðgarður: Þekja
Hafnarstjórn leggur til að Vegagerðin í samvinnu við hafnarstjóra að klári vinnu við útboðsgögn og að verkið verði boðið sem fyrst út.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00.