454. fundur Hafnarstjórnar Grindavíkur haldinn Seljabót 2, mánudaginn 27. nóvember 2017 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Ómar Davíð Ólafsson formaður, Pétur Már Benediktsson aðalmaður, Gunnar Harðarson aðalmaður, Pétur Hafsteinn Pálsson varamaður og Sigurður A Kristmundsson hafnarstjóri.
Fundargerð ritaði: Sigurður A Kristmundsson, Hafnarstjóri.
Við upphaf fundar vill hafnarstjórn senda aðstandendum Magnúsar Andra Hjaltasonar sínar innilegustu samúðaróskir.
Einnig vil hafnarstjórn þakka þeim Viktori Scheving og Andrési Óskarssyni fyrir stöf þeirra í hafnastjórn Grindavíkurhafnar á undanförnum árum og óskar þeim velfarnaðar.
Dagskrá:
1. 1711084 - Eyjabakki: Deiliskipulag
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að kanna áhuga inn- og útflutningsaðila á hugsanlegri notkun á svæðinu við Eyjabakka.
2. 1706018 - Grindavíkurhöfn: Öryggismál
Hafnarstjórn leggur til að haldið verði áfram að finna bestu mögulegu umferðarbætur.
3. 1612032 - Miðgarður, uppbygging: Verksamningur og framvinda
Staða verkefnis rædd.
4. 1711083 - Smábátahöfn: Umsókn um bláfána
Lagt fyrir og kynnt.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30.