69. fundur Frístunda- og menningarnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 10. janúar 2018 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Sigurður Enoksson aðalmaður, Þórunn Alda Gylfadóttir formaður, Ágústa Inga Sigurgeirsdóttir aðalmaður, Anita Björk Sveinsdóttir aðalmaður, Björg Erlingsdóttir sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Bjarni Már Svavarsson áheyrnarfulltrúi og Sigríður Berta Grétarsdóttir.
Fundargerð ritaði: Björg Erlingsdóttir, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Dagskrá:
1. 1709012 - Menningarvika 2018: Frístunda- og menningarsvið
Undirbúningur er hafinn og dagskráin verður fjölbreytt.
2. 1801025 - Bæjarlistamaður Grindavíkur 2018: Tilnefningar
Farið verður yfir tilnefningar á næsta fundi og bæjarlistamaður tilnefndur.
3. 1511094 - Anna Eyjólfsdóttir: Þríeind 339
Fundur verður um miðjan janúar þar sem í ljós kemur hvernig gengur með að fjármagna verkefnið.
4. 1801026 - Íþróttahús 2018: þarfagreining vegna áhalda
Nefndin leggur til að hópur verði stofnaður til að vinna þarfagreining vegna áhaldakaupa í nýtt íþróttahús. Sviðsstjóra falið að stofna hóp með forstöðumanni íþróttamannvirkja, fulltrúum frá deildum UMFG og starfsmanni UMFG.
5. 1712008 - Þrettándagleði: 2018
Þrettándagleðin gekk vel.
6. 1801027 - Sjóarinn síkáti 2018: verkefnisáætlun
Íbúafundur verður haldinn um Sjóarann síkáta þriðjudaginn 16. janúar kl. 17:00 í Kvikunni. Óskað er eftir þátttöku og tillögum frá Grindvíkingum og öðrum velunnurum hátíðarinnar, þannig að góð hátíð geti orðið betri.
7. 1710022 - Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2019-2021
Sviðsstjóri, Atli og Ágústa Inga verða fulltrúar nefndarinnar í þeirri vinnu sem framundan er.
8. 1801028 - Handverkssýning 2018: sýning á menningarviku
Opinn fundur verður haldinn með fulltrúa frá Handverk og Hönnun, Sunnevu Hafsteinsdóttur fimmtudaginn 18. janúar kl. 16 í Kvikunni.
9. 1801033 - Afrekssjóður: Marinó Axel helgason
Tekið fyrir með afbrigðum. Styrkur veittur fyrir báðar ferðir.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30