25. fundur Afgreiðslunefndar byggingarmála haldinn á skrifstofu byggingarfulltrúa, miðvikudaginn 21. febrúar 2018 og hófst hann kl. 15:00.
Fundinn sátu:
Sigmar Björgvin Árnason byggingarfulltrúi og Íris Gunnarsdóttir starfsmaður tæknisviðs.
Fundargerð ritaði: Sigmar Árnason, byggingarfulltrúi.
Dagskrá:
1. 1802060 - Efrahóp 22: umsókn um lóð
Sigurður Óli Þorleifsson sækir um lóðina Efrahóp 22 til byggingar einbýlishúss.
Samþykkt.
2. 1802061 - Efrahóp 28: umsókn um byggingarleyfi
Einar Sveinn Jónsson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi sjá teikningar frá Ólafi Tage Bjarnasyni byggingarfræðing dags.12.02.18.
Byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 2 og 4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt og greinagerð hönnunarstjóra hafi verið skilað inn.
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:42.