Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar fundaði í 480. sinn í gær og var fundurinn venju samkvæmt í beinni útsendingu á netinu. Smá hnökrar urðu á útsendingunni í upphafi en tæknimennirnir voru fljótir að greina bilunina og gekk útsendingin eftir það áfallalaust fyrir sig. Þessir hnökrar í byrjun gerðu það þó að verkum að hljóðrásin hljóp til um nokkrar mínútur eftir að útsendingu lauk. Ný upptaka hefur því verið sett á netið þar sem hljóðið er í lagi. Er hún aðgengileg hér að neðan.
Upptaka frá 480. fundi bæjarstjórnar Grindavíkur
Fundargerð 480. fundar bæjarstjórnar Grindavíkur