Auglýst eftir tilnefningum um Bćjarlistamann Grindavíkur 2018 - Lokaútkall

  • Fréttir
  • 30. janúar 2018

Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkurbæjar auglýsir eftir tilnefningum um Bæjarlistamann Grindavíkur 2018. Útnefningin verður tilkynnt í tengslum við Menningarviku Grindavíkurbæjar 10.-18. mars nk. Ábendingar þurfa að hafa borist frístunda- og menningarnefnd í síðasta lagi föstudaginn 2. febrúar 2018 á netfangið bjorg@grindavik.is.

Nefndin óskar hér með eftir tilnefningum eða ábendingum um einstakling eða samtök listamanna í Grindavík, eða sem tengjast Grindavík á einn eða annan hátt, til að bera sæmdarheitið Bæjarlistamaður Grindavíkur 2018.

Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkur útnefnir annað hvert ár Bæjarlistamann Grindavíkur og annað hvert ár Menningarverðlaun Grindavíkur, samkvæmt Menningarstefnu Grindavíkur.

Mynd: Minja- og sögufélag Grindavíkur hlaut Menningarverðlaun Grindavíkur 2017


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir