Á morgun, föstudaginn 19. janúar, er bóndadagurinn og jafnframt verður þorrablót á leikskólanum Króki. Eldri borgurum er boðið til þorraveislu og munu börnin syngja og skemmta að þjóðlegum sið. Veislan endar svo á því að allir borða saman þorramat og spjalla saman um gamla daga.
Allir eru hvattir til að mæta í þjóðlegum fötum eins og lopapeysum og/eða lopasokkum.