Undirbúningur er hafinn fyrir Sjóarann síkáta 2018 en áður en lengra er haldið þykir rétt að boða til íbúafundar, kynna hugmyndir um breytingar og auglýsa eftir hugmyndum frá áhugasömum íbúum. Sjóarinn síkáti verður helgina 1.-3. júní og að vanda verður fjölbreytt dagskrá í boði.
Hátíðin byggir á þátttöku íbúa og mikilvægt að samtal eigi sér stað á milli skipuleggjenda og íbúa. Hvað viljum við og hvernig viljum við hafa hátíðina okkar? Þriðjudaginn 16. janúar verður því boðað til íbúafundar um hátíðina, hvort við viljum breyta og þá hverju. Áhugasamir eru hvattir til þess að mæta í Kvikuna, þriðjudaginn 16. janúar kl. 17:00 og taka þátt í að gera góða hátíð enn betri.