Atvinna - Íbúđakjarni viđ Túngötu 15-17

  • Fréttir
  • 18. desember 2017

Starfsmaður óskast í 70% starf í íbúðakjarna við Túngötu 15 - 17 í Grindavík sem heyrir undir heimaþjónustudeild Grindavíkurbæjar. Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Um vaktavinnu er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 

Helsu verkefni og ábyrgð:

• Einstaklingsmiðaður og persónulegur stuðningur við þjónustunotendur í þeirra daglega lífi
• Samvinna við starfsfólk og þátttaka í faglegu starfi
• Almenn heimilisstörf

Menntun, hæfni og reynsla:

• Reynsla af störfum með fötluðu fólki æskileg
• Góð samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Þolinmæði og hvetjandi í starfi
• Æskilegt að viðkomandi sé með bílpróf

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Karlar, jafnt sem konur, eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Hlín Sigurþórsdóttir í síma 426-9909 eða á netfanginu hlin.s@grindavik.is

Umsóknum með upplýsingum um starfsferil skal skilað rafrænt á netfangið hlin.s@grindavik.is. Umsóknarfrestur er til og með 7. janúar næstkomandi.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál