Undanfarin ár hafa Grindavíkingar verið duglegir við að rækta vinabæjarsambandið við Piteå í Svíþjóð. Reglulegar heimsóknir hafa verið farnar í báðar áttir og hafa ýmsar stofnanir og starfsmenn bæjarins notið góðs af þessu vinasambandi sem hefur gefið blómlega af sér á ýmsum sviðum.
Frá árinu 2015 hefur Norræna félagið í Grindavík í samvinnu við Grindavíkurbæ, Piteå og Norðurlandaráð, boðið ungum Grindavíkingum að heimsækja Piteå. Þar fá ungmennin tækifæri til að taka þátt í skemmtilegu sænskunámskeiði yfir hásumarið.
Að jafnaði eru tvö sæti í boði, og í ár voru það þær Ína Ösp Úlfarsdóttir Aspar og Júlía Piaskowska sem héldu í víking til Svíþjóðar frá Grindavík. Þær settu saman smá ferðasögu fyrir okkur:
Snemma morguns, sunnudaginn 23. júlí lögðum við, Ína Ösp og Júlía Piaskowsa, af stað upp í Leifstöð. Ferðinni var heitið til Svíþjóðar en við höfðum verið valdar, án vafa úr föngulegum hópi umsækjenda, til þess að fara á vegum Grindavíkubæjar á sænskunámskeið í Piteå.
Við flugum til Stokkhólms þar sem við þurftum að millilenda til að fljúga svo til Luleå sem er bær ekki svo langt frá Piteå. Seinkun varð á fluginu til Stokkhólms sem gerði það að verkum við misstum af vélinni til Luleå og þurftum við því að redda því einhvern veginn. Við töluðum við fólk á flugvellinum og fengum við nýja flugmiða svo við komumst til Luleå þar sem við vorum sóttar.
Á námskeiðinu vorum við rúmlega 40 krakkar, við tvær frá Íslandi, fjórir frá Afganistan og þrjátíu og sex frá Finnlandi. Þétt dagskrá var alla dagana sem samanstóð af kennslustundum og ferðum um svæðið. Við gerðum margt skemmtilegt eins og að fara í ferðir á allskonar staði, fengum heimsóknir, höfðum bíókvöld og svo var mikill frítími þar sem allir krakkarnir gerðu eitthvað saman og auðvitað voru líka dagar þar sem við fengum að versla!
Fyrstu dagarnir voru erfiðir þar sem við töluðum og skildum sænskuna ekki svo vel en allir hinir kunnu smá sænsku. Við redduðum okkur á dönskunni í byrjun en vorum mjög fljótar að læra sænskuna líka. Eftir það var því miklu auðveldara og skemmtilegra að vera þarna.
Við kynntumst fullt af skemmtilegum krökkum og lærðum margt nýtt. Við kynntumst krökkunum frá Finnlandi og Svíþjóð mest, við höfum ennþá samband við marga af þeim og munum gera það áfram.
Við vorum alveg heillaðar af Svíþjóð og sænskunni og myndum svo sannarlega fara aftur ef við fengum tækifæri til. Þetta var svo ótrúlega skemmtilegt, fá að kynnast nýrri menningu, krökkum frá öðrum löndum, nýju tungumáli og bara að prófa eitthvað nýtt.
Það sem kom okkur sennilega mest á óvart var hvað allt fólkið þarna var alltaf ótrúlega næs. Þetta var ein skemmtilegasta upplifun sem við höfum upplifað og viljum við þakka Grindavíkurbæ fyrir að hafa leyft okkur að fara, við erum óendanlega þakklátar fyrir þetta tækifæri. Við mælum 100% með þessu námskeiði fyrir alla sem langar að prófa eitthvað nýtt og spennandi.
Þessi grein birtist upphaflega í 2. tbl. Járngerðar 2017