67. fundur Frístunda- og menningarnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 1. nóvember 2017 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Sigurður Enoksson aðalmaður, Þórunn Alda Gylfadóttir formaður, Ágústa Inga Sigurgeirsdóttir aðalmaður, Anita Björk Sveinsdóttir aðalmaður og Björg Erlingsdóttir sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Fundargerð ritaði: Björg Erlingsdóttir, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Dagskrá:
1. 1710117 - Rauði krossinn óskar eftir endurnýjum á samningi 2017
Endurnýjun samþykkt og vísað til bæjarstjórnar
2. 1503143 - Hestamannafélagið Brimfaxi: Barna- og unglingastarf
Óskað er eftir tölulegum upplýsingum, um fjölda námskeiða, hversu margir sækja og fjölda viðburða á vegum félagsins. Hversu margir eru að sækja starfið í gegnum skólann og fjölda skráðra félagsmanna sem eru á unglingastigi. Óskað er eftir að fulltrúi félagsins komi á fund nefndarinnar þegar farið verður yfir upplýsingar frá félaginu.
3. 1602027 - íþróttamannvirki: Áfangi 3, hönnun
Ármann Halldórsson kom inn á fundinn og kynnti stöðuna á framkvæmdum og farið yfir teikningar.
4. 1608002 - Sjómannagarður: útikennslusvæði.
Ármann Halldórsson kom inn á fundinn og kynnti stöðuna á framkvæmdum og farið yfir teikningar.
5. 1610059 - Grindavíkurbær: Heilsueflandi samfélag
Nefndin lýsir vonbrigðum með að fjármunum sé ekki veitt í þetta verkefni árið 2018 en leggur til að unnið verði að framgangi þess innan þeirra stofnana sveitarfélagsins sem geta tekið upp hugmyndafræði heilsueflandi samfélags. Sviðsstjóra falið að vinna áætlun um hvernig hægt er að vinna að framgangi verkefnisins þrátt fyrir skort á fjármunum, sótt verði um til landlæknisembættisins.
6. 1509096 - Frístunda- og menningarsvið: Fjárhagsáætlun 2016-2019
Nefndin leggur mikila áherslu á að hugað sé að starfsmannamálum í íþróttahúsi og nauðsyn þess að manna það vel. Starfsmannafjöldi og verkefni þurfa að endurspegla aukna starfsemi og þá áherslu sem lögð er á íþróttaiðkun í Grindavíkurbæ.
7. 1710012 - Móttaka gesta: Alaska
Sagt frá heimsókn frá starfsmönnum í forvarnarmálum og félagsþjónustu
8. 1602175 - Samsuð: Fundargerðir
Frestað til næsta fundar
9. 1608075 - Hestamannafélagið Brimfaxi: Öryggi um reiðvegi Grindavíkur
Ármann Halldórsson kom inn á fundinn og kynnti stöðu aðalskipulagsvinnu. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að vera í samstarfi við sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:20.
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________