Það verður boðið upp á notalega sögustund á Bryggjunni í kvöld kl. 21:00 en þá munu nokkrir valinkunnir sagnamenn stíga á stokk og segja skemmtilegar sögur úr Grindavík og af Grindvíkingum. Sögumenn verða þeir Aðalgeir Jóhannesson, Hinrik Bergsson, Ólafur Ragnar Sigurðsson og Sverrir Vilbergsson.
Viðburðurinn hefst kl. 21:00 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.