82. fundur Félagsmálanefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 14. september 2017 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásrún Helga Kristinsdóttir aðalmaður, Birgitta H. Ramsay Káradóttir aðalmaður, Laufey Sæunn Birgisdóttir formaður, Gunnar Margeir Baldursson aðalmaður og Nökkvi Már Jónsson.
Fundargerð ritaði: Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Dagskrá:
1. 1709065 - Félagslegar íbúðir: Trúnaðarmál
2. 1708094 - Fjárhagsaðstoð: Trúnaðarmál
3. 1708142 - Fjárhagsaðstoð: Trúnaðarmál
4. 1709018 - Fjárhagsaðstoð: Trúnaðarmál
5. 1703023 - Fjárhagsaðstoð: Trúnaðarmál
6. 1709063 - Fjárhagsaðstoð: Trúnaðarmál
7. 1709064 - Stuðningsfjölskylda: Umsókn um leyfi
Sótt er um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda. Fyrir liggur að umsækjendur uppfylla skilyrði leiðbeinandi reglna fyrir sveitarfélög um þjónustu stuðningsfjölskyldna. Félagsmálanefnd samþykkir umsóknina og veitir leyfi til eins árs til að vera með allt að tvö börn samtímis.
8. 1709066 - Daggæsla í heimahúsi: Umsókn um leyfi
Sótt er um leyfi til að sinna daggæslu í heimahúsi. Öll tilskilin gögn liggja frammi. Félagsmálanefnd veitir umsækjanda leyfi til að sinna daggæslu barna frá 6 mánaða aldri, allt að fjórum börnum samtímis og ekki fleiri en tveimur undir eins árs aldri. Leyfið tekur til eins árs.
9. 1709055 - Umsókn um að gerast dagforeldri
Sótt er um leyfi til að sinna daggæslu í heimahúsi. Öll tilskilin gögn liggja frammi. Félagsmálanefnd veitir umsækjanda leyfi til að sinna daggæslu barna frá 6 mánaða aldri, allt að fjórum börnum samtímis og ekki fleiri en tveimur undir eins árs aldri til reynslu í 6 mánuði, að þeim tíma liðnum skal endurnýja leyfið, samkvæmt reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum, nr. 907/2005. Umsækjanda er skylt að sækja námskeið eins og kveðið er á um reglugerð við fyrsta hentugleika.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45.