Næstu vikur má búast við töfum á umferð um Gerðavelli þar sem unnið er að uppsetningu tveggja hraðahindranna. Vinnusvæðið er vandlega merkt og afmarkað og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi meðan á framkvæmdunum stendur.
Til stendur að setja upp tvær hraðahindranir, eina við gatnamót Gerðavalla, Blómsturvalla og Hólavalla, og aðra við gatnamót Víkurbrautar og Gerðavalla. Framkvæmdin tekur mið af óskum íbúa sem búa á svæðinu en árið 2016 skiluðu þeir inn undirskriftarlista sem taldi 29 blaðsíður þar sem skorað var á bæjaryfirvöld að bregðast við miklum umferðarhraða í götunni.