Föstudaginn 2. nóvember stígur tríóið Guitar Islancio á stokk á Bryggjunni. Þeir félagar Björn Thoroddsen, Gunnar Þórðarson og Jón Rafnsson leika lög af nýútkominni plötu sinni Þjóðlög. Tónleikarnir hefjast að vanda kl. 21:00 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.