13. nóvember kl. 20:00 í Tónlistarskólanum í Grindavík
Berta Dröfn Ómarsdóttir sópran og Giorgia Alessandra Brustia píanóleikari flytja ítölsk ljóð og aríur eftir Donizetti, Rossini og Tosti.
Berta Dröfn útskrifaðist árið 2016 eftir mastersnám í söng við Conservatorio Claudio Monteverdi í Bolzano á Ítalíu. Alessandra Brustia er píanóprófessor við þann tónlistarháskóla og virtur píanóleikari. Brustia og Berta kynntust í verkefnum innan skólans og hófu sitt samstarf.
Báðar hafa þær komið fram víða um heim, en þetta er í fyrsta sinn sem þær stíga á svið saman á Íslandi