1459. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 10. október 2017 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Kristín María Birgisdóttir formaður, Hjálmar Hallgrímsson varaformaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir aðalmaður, Marta Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi, Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. 1708096 - Gatnagerð: Fiskasund
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.
Fjórir aðilar skiluðu inn forvalsgögnum og lagt er til að þeim verði boðin þátttaka í útboðinu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að bjóða verkið út.
2. 1708099 - Gatnagerð: Víkurhóp
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.
Fjórir aðilar skiluðu inn forvalsgögnum og lagt er til að þeim verði boðin þátttaka í útboðinu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að bjóða verkið út.
3. 1710020 - Beiðni um umsögn: Nýtingarleyfi á sjóblönduðu vatni í landi Grindavíkurbæjar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.
Orkustofnun óskar eftir umsögn um umsókn um nýtingarleyfi á sjóblönduðu vatni í landi Grindavíkurbæjar, vegna stækkunar fiskeldisstöðvar í Grindavík.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.
4. 1710044 - Reglur um sí- og endurmenntun: Breyting á 16. tölulið
Tillaga um breytingar á hlutföllum í B- og C-lið 16. greinar. B-liður er nú 12% og lagt er til að hann verði 20%. C-liður er nú 18% og lagt er til að hann verði 10%.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna.
5. 1704039 - Bergbúar ehf: Umsókn um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II.
Fyrir liggja nýjar umsagnir frá HES, byggingarfulltrúanum í Grindavík og Slökkviliði Grindavíkur. Málið kemur fyrir að nýju eftir að hafa verið synjað á grundvelli fyrri umsagna.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.
6. 1705121 - Refa- og minkaveiðar í Grindavík
Lögð fram beiðni 5 aðila um leyfi til að skjóta ref og mink í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir að heimila þessum aðilum refa- og minkaeyðingu í sveitarfélaginu til 1. maí 2018.
7. 1710046 - Alþjóðaþing Arctic Circle: Fundarboð
Fundarboð Alþjóðaþings Arctic Circle lagt fram.
Fulltrúum Grindavíkurbæjar er boðið til alþjóðaþings Hringborðs Norðurslóða, 13.-15. október í Hörpu.
8. 1710021 - Skáknefnd UMFG: ósk um styrk 2017
Þjálfari Skáknefndar UMFG óskar eftir styrk vegna æfinga fram að áramótum.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að fjárhæð 238.000 kr. á árinu 2017 af styrktarlið bæjarráðs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:05.