Píanóleikarinn Sunna Gunnlaugsdóttir og Hollendingurinn Maarten Oenstein halda tónleika á Bryggjunni, miðvikudaginn 4. október kl. 21:00. Dúóið leikur eigin tónsmíðar í bland við Monk og ýmislegt fallegt og áhugavert sem fellur til. Áhersla er á flæði og rými sem endurspegla víðáttu Íslands og litríkt líf Amsterdamborgar. Hljóðfærin tvö falla eins og flís við rass, bæði með stór tónsvið þar sem þau fléttast saman í hlutverki undirleikara og aðalleikara.
Þau hafa bæði verið áður á Bryggjunni og hann lét þau orð falla að þessi Jassbúlla væri á miðjum þjóðveginum á milli New York og Amsterdam. Allir vita að stórborgin í Ameríku sem aldrei sefur, var stofnuð af Hollendingum á sínum tíma. Þá hét borgin New Amsterdam. Bryggjan heitir samt sínu nafni og reynir að standa undir því.
Miðvikdaginn 4. október kl. 21:00.
Það eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
BEZTU KVEÐJUR
BRYGGJAN.