Opið Svið verður á Bryggjunni í Grindavík föstudagskvöldið 6. október. Fjörið hefst kl. 21:00 og stendur til kl. 00:00. Þetta verður hvorki meira né minna en í 31. sinn sem Opið Svið er haldið en þessi viðburður hefur notið fádæma vinsælda. Frítt er inn eins og alltaf og allir hjartanlega velkomnir.
Að vanda ætlar hljómsveitin 3/4, þeir Halldór Lárusson trommuleikari, Ólafur Þór Ólafsson gítarleikari og Þorgils Björgvinsson alltmöguleikari að leika allt mögulegt og ómögulegt og er gestum velkomið að taka þátt, syngja, leika, dansa, spjalla eða leysa lífsins vanda.