Starf organista og kórstjóra við Grindavíkurkirkju er laust til umsóknar. Um 50 - 60% starfshlutfall er að ræða. Organisti hefur forystu um allt tónlistarstarf safnaðarins. Óskað er eftir að viðkomandi hafi kirkjutónlistarmenntun og reynslu af tónlistarstarfi við kirkju. Auk starfs með kirkjukór og hefbundins helgihalds, er sérstaklega óskað eftir einstaklingi sem sér fyrir sér stofnun barnakórs og söngstarfi með fermingarbörnum.
Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Þjóðkirkjunnar og FÍO/organistadeildar FÍH. Umsóknarfestur er til 20. októbers 2017.
Umsækjendum ber að fylla út eyðublað þar sem sóknarnefnd er heimilaður aðgangur að sakaskrá viðkomandi umsækjenda. Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni. Eyðublaðið er á vef kirkjunnar.
Umsóknum ásamt námsferli, afritum af prófskírteinum og upplýsingum um starfsreynslu skal skila til formanns sóknarnefndar, Guðbjargar Eyjólfsdóttur, gudbjorg@grindavik.is - sími: 893-8626, sem einnig veitir upplýsingar um starfið ásamt sr Elínborgu Gísladóttur, sími: 696-3684 - gkirkja@isl.is