Grindavík mætir til leiks í Útsvarinu þann 29. september þar sem boðið verður uppá sannkallaðan Suðurnesjaslag en andstæðingar okkar í fyrstu umferð eru nágrannar okkar úr Garði. Grindavík tryggði sig nokkuð örugglega inn í keppnina í ár en átta efstu lið síðasta árs komast beint inn í keppnina þennan veturinn. Eins og sennilega flestir muna náði lið Grindavíkur í undanúrslit í fyrra þar sem það laut í gras fyrir Fjarðabyggð.
Grindavík teflir nú fram nokkuð breyttu liði frá því í fyrra. Útsvarskempan Agnar Steinarsson hefur lagt skóna á hilluna í annað og sennilega síðasta sinn og Andrea Ævars gaf ekki kost á sér á ný. Eggert Sólberg Jónsson er því kjölfestan í liðinu í ár en honum til halds og traust verða þau Lovísa Larsen og Páll Valur Björnsson.
Liðið kom saman til æfinga í gær og er nokkuð gott hljóð í hópnum og töluverð tilhlökkun líka að fá að takast á við þetta spennandi verkefni.