Fisktækniskóli Íslands og Marel hafa endurnýjað samstarfsamning sinn, þar sem Marel sér skólanum fyrir kennsluaðstöðu, aðgengi að tækjum og kennurum í þeim greinum sem lúta að tækjum Marels. Samningurinn er til tveggja ára og er áframhald á samstarfi síðustu þriggja ára. Báðir aðilar lýstu yfir mikilli ánægju með samstarfið og þótti einboðið að halda því áfram, en samningurinn var undirritaður á Sjávarútvegssýningunni í liðinni viku.
Marel og Fisktækniskóli Íslands hafa undirritað samning um áframhaldandi samstarf til næstu tveggja ára, þar sem Marel sér skólanum fyrir kennsluaðstöðu, aðgengi að tækjum og kennurum í þeim greinum sem lúta að tækjum Marels.
Undirritunin fór fram á Íslensku sjávarútvegssýningunni í síðustu viku en báðir aðilar lýstu þá mikilli ánægju með samstarfið síðastliðin þrjú ár.
„Tæknistigið í íslenskum fiskvinnslum eykst með tilkomu nýrrar tækni sem byggist á tölvustýrðum tækjum og línum. Það er því aukin þörf á sérhæfðu starfsfólki í fiskvinnslu með góðan bakgrunn í tækni og hugbúnaði. Til að mæta þessari þörf hafa Marel og Fisktækniskóli Íslands í sameiningu boðið upp á tveggja anna nám síðastliðin þrjú ár sem kallast Marel vinnslutæknibraut," segir á vef Marel.
Skapi aukin verðmæti
„Hlutverk Marel vinnslutæknis er að sjá til þess að Marel tæki og hugbúnaður í vinnslunni séu að vinna á sem skilvirkastan máta og þannig skapa aukin verðmæti. Marel vinnslutæknir á að geta allt sem tengist vinnslu á staðnum, s.s. þrifið tækin, greint helstu bilanir og takmarkað umhverfisaðstæður sem hafa áhrif á virkni tækjanna.
Námið er hugsað jafnt fyrir fólk sem kemur beint úr tveggja ára grunnnámi Fisktækniskólans sem og fyrir þá sem stunda atvinnu, búa utan skólasvæðis og hafa staðist raunhæfnimat á vegum Fisktækniskólans. Samstarfsverkefnið byggist á að þróa og reka eins árs framhaldsnám við skólann sem hefur það að markmiði að útskrifa Marel vinnslutækna."