Hópsnesið er magnaður staður. Þetta vita Grindavíkingar vel og Hópsnesið er líka vinsæll viðkomustaður ferðamanna sem heimsækja Grindavík. Fáir hafa þó sennilega verið jafn heillaðir og Spánverjinn Iñigo Pedrueza Carranza sem heimsótti Hópsnesið í vor, tók meðfylgjandi mynd og skrifaði eftirfarandi texta um heimsóknina, sem við birtum hér í lauslegri þýðingu okkar:
„Skipakirkjugarðurinn við Grindavíkurhöfða. Þar sem stormar lemja flök skipa sem rak af leið. Einn af allra mögnuðustu stöðunum sem við sáum á ferð okkar um Ísland. Hugrekki og tár blandast ryði eyðileggingar. Þetta er magnaður staður en við megum ekki gleyma þjáningu sjómannanna, fjölskyldna þeirra og björgunarfólks. Þetta er staður fullur af dulúð og þokka, með litríkum vitum og hraunbreiðum."
Það er ekki ofsögum sagt að Hópsnesið sé kyngimagnaður staður og raunar náttúran allt í kringum okkur hér í Grindavík.