Réttað verður í Þórkötlustaðarétt í Grindavík á morgun, laugardaginn 16. september kl. 14:00. Réttirnir eru oftast vel sóttar af gestum og stundum má vart á milli sjá hvor hópurinn er fjölmennari, menn eða sauðfé. Við biðjum gesti um að sýna tillitssemi við bændur og sauðfé og hvetjum sem flesta til að nýta sér göngustíga meðfram Austurvegi og skilja bílana eftir heima.
Einhverjir bændur reka sitt sauðfé alla leið heim í hús og má búast við örlitlum umferðartöfum á ákveðnum gatnamótum seinni partinn vegna þess. Við biðjum vegfarendur að sýna þolinmæði meðan ærnar renna hjá í einum hóp eftir götum breiðum.
Nokkrar myndir úr réttunum 2015: